|
|
07.09.2006 20:53:43 / toty
já, rétt hafði tíma til að skjótast í vigtina, bjóst við einhverri
mjööög gefandi og skemmtilegri tölu, en þau voru ekki nema
200, grömmin sem fóru  mér líður samt eins og það
sé meira og er búin að vera afar dugleg í síðustu viku. Held
því þá bara áfram, ekki satt. Þannig að nú ætla ég að
prófa að bæta við mig meiri olíu og smjöri, gæti verið útskýringin.
»
04.09.2006 21:40:47 / toty
...og enn úr tilraunaeldhúsi Tótý
Mín prófaði í gærkvöldi að gera hlaup úr rifsberjum og nota Söd
í staðin fyrir sykur, hafði í raun ekki mikla trú á að þetta gæti
gengið en viti menn! Ég rúllaði þessu upp og á í fórum mínum tæpar
fjórar sykurlausar rifsberjahlaupskrukku sem ég get borðað með
góðri samvisku. Ég þarf reyndar alltaf að nota hleypiefni í
rifsberjahlaup hjá mér, en það eru bara álög sem eru á
mér Var farin að nota fyrir nokkrum árum síðan þetta í bláu
pökkunum "Melatin" "mindre sukker" og gerði það líka núna.
Æði. Mæli með þessu. Þið þurfið svo bara að reikna út hvað
þið þurfið mikið af söd miðað við saftbirgðirnar ykkar.
Veit ekki hvort þið hafið tekið eftir því, en ég var að bæta við
link sem heitir ávextir,ber og
grænmeti. Þar er fullt af myndum af hinum
ótrúlegustu hollustuafurðum. Fann þennan link einhverstaðar
og vona að það sé í lagi að nota hann.
»
01.09.2006 17:38:07 / toty
ole,ole,ole,ole ole , ole....
já, sigursöngur hjá minni. 1,2 kg. kvödd þessa vikuna
Góð maður. Hrikalega ánægð með þetta. Líður hérumbil svona
906090 Var á fundi í gær og þá var alveg hellingur af
nýjum ddv-urum. Allavega. Síðasta vika gekk þetta vel
og planið er að hafa næstu viku líka svona góða. Er dugleg
þessa dagana að prófa eitthvað nýtt, eins og mér leiðist nú að
elda! Gerði mér danskar í fyrsta skipti í gær, bara ágætar og
steikti mér keilu með. Já, keilu, mjög lík steinbít að útliti og
bragðið ekkert ósvipað heldur. Bara ágæt með urmul af hvítlauk, tók
svo restina með í vinnu í dag og borðaði kalda í hádeginu
ásamt grænmeti og einni brauðsneið. Dugði mér vel.
Prófaði líka í vikunni einhver kanilstykki sem ég fann uppskrift af
einhverstaðar, alveg ágæt -ætla samt að minnka dropana næst.
Og talandi um dropana, ég spurði um það á fundi í
gær hvort það gæti verið stafsetningavilla á kökuppskriftablaðinu
hjá dropunum. Málið er að þeir eru alltaf að endurbæta
vörurnar og bragðefnin í dropunum eru orðin sterkari þannig að við
þurfum minna.
Vonandi lekur lýsið af ykkur líka ætla að taka góðan
rúnt í kvöld eða um helgina og sjá hvernig ykkur gengur.
P.s. langar bara að þakka fyrir kommentin, þau eru æði, og þeir
sem ekki kommenta, æji, þið megið það alveg 
»
30.08.2006 21:29:09 / toty
bara smá. Var að bæta nokkrum nýjum í tenglana, endilega
kíkið við hjá þeim. Það eru: Agatha, Emma, Fibena og
Strympa allt jaxlar sem ætla að taka á því með okkur í
vetur.
Vúhú, vigtun á morgun. (hefði aldrei sagt vúhú ef ég vissi
ekki að ég væri búin að vera dugleg síðustu viku)
túdílú þangað til eftir vigtun!
»
28.08.2006 22:01:39 / toty
Veit ekki hvort
þið séuð svefnpurkur þið sem lesið þetta, en ég er óttalega
svefnpurka um helgar. Það þýðir þá að ég er
ekki borða
morgunmatinn minn á morgnana, heldur lendir hann svona inní
hádegismatnum hjá mér, og þá þarf að borða svo mikið að ég
stend á blístri allann daginn. Ég er að reyna að böggla
þessu saman t.d. með því að fá mér rækjusalat (80 rækjur=hád.
og 1 egg= morgunm) + 1-2 brauðsn. + 300 gr. grænmeti + einn
ávöxt. Þetta er
náttúrulega hrikaleg hrúga! Er ekki í lagi að dreifa
þessu soldið yfir daginn ? – hvað gerið þið ? vakniði bara
snemma? Á ég sem
sagt að fara að stilla klukkuna! O boy!!! En án gríns, hvað
gerið þið? Komment óskast
gjarnann.
Annað:Nú var mín að voða skipulögð um
helgina og eldaði og bakaði, en kakan endaði í ruslinu ásamt
formunum Sko, ég fór eftir grunnuppskriftinni og þar er
talað um 2-4 tsk. af vanilludropum. Mig logsvíður enn í tunguna
eftir að ég smakkaði á kökunni og vill kenna dropunum um.
Er ég að lesa þetta
vitlaust? Eiga þetta kannski að vera 2-4 dropar, hjelp
anybody? Formin fóru nú bara í ruslið
af því að það festist alltaf í þeim, og ég nenni ekki
svoleiðis veseni. Já, og svo eldaði
ég. Átti frosna
lifur sem ég afþýddi snöggvast og skellti yfir á kínversku
eða eitthvað, hrikalega gott, betra en á Nings. (og ódýrara)
þessi uppskrift er á einu af uppskriftarblöðunum sem við
höfum fengið á fundi. Ég reyndar breytti henni
smá, það er einhver árátta hjá mér að breyta uppskriftum, eða
ég á aldrei alveg allt sem á að fara í þær og þá spinnur
maður bara
J
Vá, hef aldrei
skrifað svona mikið – er alveg búin að fá útrás
núna
J
Vonandi rennur af
ykkur.
»
25.08.2006 13:27:33 / toty
Já, mínus, þrátt fyrir það ég byrjaði bara á mánudaginn af
fullum krafti. 700 gr. niður. Mér finnst það æði. Og þá eru bara
9,3 eftir af jólatakmarkinu. ))
Var aðeins að taka til í átaksskvísulistanum mínum og henda út
þeim sem hafa ekki bloggað í laaaaangann tíma. Einnig bætti
ég Krúslu við á listanum, hún er á bullandi
siglingu, endilega kíkiði við.
»
21.08.2006 20:38:46 / toty
Hæ allar,
Er að lesa mig í gegnum kvöldið, dagurinn búin að vera alveg
svona rosalega góður, en það er þetta "eitthvað" sem mig langar
alltaf í á kvöldin, og í kvöld verður "eitthvað" lestur þangað til
ég fæ mér frosin hindber og sýrðan. slurp, þarna kom vatn í
munninn....þekkið þið þetta...
Var að bæta nýrri samferðakonu á listan hjá mér, endilega kíkið
við hjá henni - "Leið"
Annars er ég búin að setja mér markmið. -10 kg. fyrir jól,
þ.e.a.s. næstu jól ekki 2015....var ég búin að segja ykkur
það. Hvað stefnið þið á að kveðja mörg?
»
20.08.2006 20:25:05 / toty
sjáiði hvað mín gat í kvöld jebb, rétt hjá ykkur ó þið
athugulu konur. Kílóastikan komin upp aftur. jáááá, maður
getur ýmislegt.
Annars er mín bara alveg að detta í gírinn, er að elda mér
grænmetissúpu núna til að taka með mér í vinnuna og var að renna
yfir allar ddv biblíurnar í dag svona til upprifjunnar. Ætla
að vera dugleg að prófa hina ýmsustu rétti. En ég tók eftir
einu, ég á ekki neina uppskrift af deigi í svona bökur, getið þið
hjálpað mér þar?
»
17.08.2006 20:42:53 / toty
Já, ég er s.s. að byrja að vinnuna í höfðinu. Búin að vera
á vafrinu og mér finnst þið standa ykkur vel og það er hellings
hvatning fyrir mig. Á mánudaginn ætla ég mér að byrja
aftur á danska og er bara farinn að hlakka til. Byrjuð að spekúlera
í hvað ég á að búa mér til til að frysta og taka svo í vinnuna og
svona.
bið að heilsa í bili
kv. toty - hugsandi á dönsku 
»
10.08.2006 18:23:33 / toty
Þið eruð svooo æðislega takk, "sssmakk" og knús
Ég er alveg hérna, fór m.a.s. í vigtun áðan jú, um 3 kg,
komin til baka allt í allt, læt það svo sem alveg vera....
Ég ætla líka í vigtun næsta fimmtudag, en það verður nú ekkert
rosalega mikið tekið á því þangað til, er eiginlega farin að hlakka
til að rútínan (sem maður verður annars stundum svo leiður á)
komist á afttur. En ég er að byrja að vinna í höfðinu á mér,
það borgar sig nefnilega að láta það fylgja, þannig að þetta fer
allt að koma.
Hvernig gengur ykkur, eruð þið komnar á beinu brautina - þessa
holóttu ?
»
06.06.2006 19:54:35 / toty
...gaman að slá þessa tölu inn á lyklaborðið og til hamingju
Bubbi, með afmælið 
Jú er hér og ætla að halda áfram að skrifa, samt bara lítið í
sumar ok!
Fór í vigtun s.l. fimmtudag í Garðabæinn, miklu skemmtilegri
salur, og vigt bara líka held ég. 700 gr. kvöddu, reyndar
eftir tvær vikur, en mér er slétt sama um það. Ég sá sem sagt
langþráða tölu, 95,8 - en 95 - já, mín er greinilega ekki dauð í
öllum enn. Mikið var ég glöð. Finnst alveg frábært hvað
bara tilhugsunin um að fara í vigtun skilar mér langt, hún veitir
mér alveg hellings aðhald. Er bara ekkert að skrifa dagbókina núna,
og ekki nógu dugleg að vigta heldur, en er komin á full í
moldvörpufílingin, moka, reita, klippa, planta ummm æði. Er
með mitt eigið spínat hér úti í garði ásamt fleiri salattegundum.
Get svo ábyggilega núna um helgina farið að týna mér í
matinn. Það er alveg frábært að geta farið út í garð og náð
sér í nokkur blöð af salati til að hafa með kvöldmatinn.
Þvílíkur lúxus :9
Jæja, er s.s. búin að kveðja samtals 12,4 kg og gæti ekki verið
glaðari með það.
Gangi ykkur rosalega vel, þið örfáu sem kíkið hingað inn.
»
21.05.2006 13:10:22 / toty
svona kom annars síðasta skoðannakönnun út. Set hér með nýja
inn.
|
Finnst þér fólk duglegt að svara skoðannakönnunum
? |
| já |
36% |
| nei |
64% |
við þurfum að taka okkur á í því að taka þátt í skoðannakönnunum
hjá hvorri annari.
»
21.05.2006 13:07:20 / toty
já, vigtunin síðasta fimmtudag var bara nokkuð ánægjuleg. 500
gr. niður takk fyrir. Ég er mjög glöð með það, komin í 96,5-
þetta er allt í áttina. Er svona ca 80% í ddv en má alveg
vera duglegri með matardagbókina, finnst hún gera alveg rosalega
mikið. Er líka búin að snúa mér soldið mikið að fisk, síld,
túnfisk og lax og þetta er allt eitthvað sem maður getur borðað í
hádeginu. Reyndar prófaði ég að kaupa frosin lax í Bónus
um dagin, sem búið er að marinera og skelli honum á grillið. - Bara
góður og á sko alveg pottþétt eftir að kaupa svona aftur.
Hann er líka í skemmtilegum pakkningum, maður getur klippt svona á
milli stykkjana.
Allavega, er í sumargír, í hraglandanum og það er 21 mai 
Ofboðslega væri nú gaman ef þeir sem detta hér inn myndu gefa
comment 
Go girls !
»
16.05.2006 17:10:59 / toty
Jú, ég er alveg hérna. Byrja bara alltaf á að fara einn
rúnt og sjá hvernig ykkur gengur nenni svo ekki að skrifa
eitthvað hjá mér. er að taka í skottið á mér.
Allavega, vigtun síðast var eiginlega ekkert spes, 100 gr. upp,
en mátti alveg gera ráð fyrir því. Stóð í 97,00 - skemmtileg
tala Vona að eitthvað fari niður næst.
Svo langar mig að segja ykkur frá einu alveg geggjuðu á
grillið. Eggaldin, skorið í ca 1 cm. þykkar sneiðar, smurt
pínu með olíu, skellt á grill og kryddað vel með "Caj P
grillkrydda" o.m.g. hvað þetta er gott. Fór með heilt
svona stk. niðurskorið út á grillið í gærkvöldi, en kom eiginlega
ekki með neitt inn til baka og langaði í meira.
gangi okkur öllum áfram vel. Kíki á ykkur - bæjó
»
04.05.2006 18:42:15 / toty
Varð að segja ykkur það ....STRAX.
Kvaddi 1 kg. í dag   Ekki nema 1,9
kg. í næsta markmið sem á að hafast á næstu 2-3 vikum. ÉG ER
SVOOOOO GLÖÐ.
Margar og mikla pælingar í kollinum á mér og er að prófa mig
áfram í réttum. Prófaði eftir síðast fund að taka gult/grænt
epli, ekki skræla, skera í tvennt, taka kjarnan úr báðum helmingum
með tsk. og setja sultu í holurnar og kannski smá kanil yfir og
síðan í örbylgjuna í 3 mín. og borða með sýrðum. Ummummm
- bara gott og einfalt kvöldsnakk.
meira seinna
»
Síður: 1 2 3 4
|
|